Mögulega bjargaði YouTube geðheilsunni á árinu 2020. Þessi fáu en góðu ljósmyndatengdu verkefni sem við fengum á árinu björguðu okkur algerlega séð út frá lifibrauðinu. Við erum þannig afar þakklát fyrir að miðað við allt sem gekk á á árinu þá höfðum við mikið að gera – sem er ekki sjálfgefið. Í þessu myndbandi horfum við um öxl og fjöllum eingöngu um það sem flokkast sem jákvætt á árinu. Hitt má fara til fjandans og óþarfi að velta sér upp úr því. Sem betur fer sátum við ekki auðum höndum – og nú horfum við með bjartsýni á 2021.